Kjör á nýjum forseta auðveldar þingi að vinda ofan af arfleifð Netanjahús

Kjör Matans Kahana, sem er úr röðum stjórnarandstöðunnar, til forseta ísraelska þingsins í gær getur leitt til þess að undið verði ofan af löggjöf frá tíma Benjamíns Netanjahús, núverandi forsætisráðherra.Kahana, bandamaður stjórnarandstöðuleiðtogans Gadis Eisenkots, stýrði fyrsta þingfundi sínum í Knessetinu, ísraelska löggjafarþinginu, í morgun. Hann var kjörinn forseti með 66 atkvæðum af 120 og hafði betur gegn Ofir Kats, fulltrúa Likud-flokks Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra.Eisenkot hefur fengið stjórnarmyndunarumboð sem gildir fram í desember. Forseti þingsins ákveður tímaáætlun þingsins og getur flýtt fyrir eða frestað umræðum um lagafrumvörp.Með kjöri Kahana geta þingmenn úr herbúðum Eisenkots snúið málum Netanjahús við þótt ný stjórn hafi ekki verið mynduð. Hvorug stjórnmálaf
Kjör á nýjum forseta auðveldar þingi að vinda ofan af arfleifð Netanjahús

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar