Víðtækar truflanir urðu í forritum Microsoft um allan heim fyrir helgi. Áhrifin vörðu í um sólarhring og milljónir komust ekki í tölvupóst og forrit sem eru mikið notuð við skrifstofustörf. Truflanirnar urðu því innlegg í umræðu um stafrænt fullveldi sem kastljósið hefur verið á síðustu misseri. Samskipti þjóða eru að breytast og spurt er um mikil áhrif stórra tæknifyrirtækja.Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var sjónum beint að stafrænu fullveldi þjóðar á tímum þegar landsmenn, stofnanir, fyrirtæki og stjórnvöld reiða sig mjög á erlenda tæknirisa í leik og starfi.Dósent í tölvunarfræði segir að þróun í átt að stafrænu fullveldi sé hluti af sjálfstæðisbaráttu nútímans. Hann telur Ísland mjög háð Bandaríkjunum um stafræna innviði og æskilegt að skoða bæði innlenda þróun og opinn hugbúnað