Kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur hefði geta verið 4,4 milljörðum króna lægri í fyrra ef launakostnaður hefði fylgt launavísitölu frá árinu 2022 og annar rekstrarkostnaður hefði hækkað í takt við verðlag. Þetta kemur fram í bréfi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra til stjórnar Orkuveitunnar, en Vísir greindi frá því að hún hefði sent stjórninni bréfið núna fyrr í nóvember.