Lagt til að Sandra verði 2. varaforseti í stað Ingvars

Við upphaf þingfundar í dag stendur til að kjósa 2. varaforseta Alþingis í stað Ingvars Þóroddssonar, sem hefur yfirgefið þingflokk Viðreisnar og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.Lagt er til að 2. varaforseti verði Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi. Hún varð alþingismaður í kjördæminu í janúar þegar Guðbrandur Einarsson sagði af sér þingmennsku.Sjö þingmenn sitja í forsætisnefnd Alþingis, úr öllum þingflokkum nema Framsóknarflokknum sem er með áheyrnarfulltrúa.
Lagt til að Sandra verði 2. varaforseti í stað Ingvars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar