Lögreglan á Suðurlandi hefur lokið rannsókn sinni á banaslysi sem varð á Breiðamerkurjökli í ágúst 2024. Ísveggur hrundi með þeim afleiðingum að bandarískur ferðamaður lést og bandarísk kona slasaðist alvarlega.Lögregla hefur vísað rannsókninni til ákærusviðs sem tekur ákvörðun um hvort einhver verði ákærður eða hvort málið verði látið niður falla. Einnig getur ákærusvið beint því til lögreglu að ráðast í frekari rannsóknir ef þörf krefur. Þetta kemur fram í svari lögreglu við fyrirspurn fréttastofu.Nokkrir einstaklingar eru með réttarstöðu sakbornings, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Ekki fengust upplýsingar um hversu margir þeir eru eða hverjir þeir eru.Mikill viðbúnaður var þegar ísveggurinn hrundi. Óttast var að tveir hefðu lent undir ísnum, til viðbótar við manninn sem lést og konu