Þó að áhrif af aðhaldi peningastefnu Seðlabankans séu að einhverju leyti farin að bíta á raunhagkerfinu er bankinn í mjög þröngri stöðu varðandi að slaka á taumhaldinu og þar með gefa eftir og lækka stýrivexti. Nú þarf bankinn að meta hversu langt eigi að ganga til að ná verðbólgu niður á móti því að passa upp á að valda ekki of miklum skaða fyrir raunhagkerfið.