Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík reiða sig í auknum mæli á munnlegt námsmat og lokapróf í lokuðu umverfi, í stað ritgerða, heimadæma og annars slíks.„Við erum náttúrulega bara í miðri ánni,“ segir Margrét Sigrún Sigurðardóttir prófessor og sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands. Þetta sé stærsta verkefnið sem háskólar séu að kljást við þessa dagana. Í HÍ hafi frekar verið lögð áhersla á að hanna námsmat þannig að hægt sé að vinna með gervigreind eftir tilteknum viðmiðum og reglum frekar en að banna hana. „Af því að ef við bönnum hana, þá endum við í kapphlaupi um það að greina notkun gervigreindar sem ég held að við getum ekki unnið,“ segir hún.Bæði Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík hafa sett sér stefnur og reglur um notkun gervigreindar. Viðurlög við brotum eru þau sömu o