Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri starfsemi ætti með réttu að heita aðför að grundvallarmannréttindum á Íslandi, segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður. Hann gagnrýnir í grein á Vísi að gera eigi grundvallarbreytingu á réttarskipan.Frumvarpið sem Vilhjálmur gagnrýnir var samþykkt í ríkisstjórn í síðustu viku. Dómsmálaráðherra hefur boðað aðgerðir til að styrkja valdheimildir lögreglu í baráttu við skipulagða brotastarfsemi.Vilhjálmur telur of langt gengið. Hann segir að það sé ekki ósanngjörn krafa að lögregla læri að fara með núverandi valdheimildir áður en hún fái auknar heimildir. „Annað er ábyrgðarleysi sem má öldungis jafna til þeirrar hegðunar að afhenda óvitum rafbyssur og kalla þær rafvarnavopn með þekktum afleiðingum.“Fyrsta atriðið sem Vilhjálmur gagnrýnir er að hægt verði