Vinna 5-6 þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu til að halda Óðni við

Varðskipið Óðinn lauk þjónustu við Landhelgisgæsluna fyrir tuttugu árum en er núna aðal sýningargripur Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Á hverjum mánudagsmorgni mætir hópur manna á sjálfskipaða vakt til að klappa skipinu eins og þeir kalla það. Fyrst voru þeir tveir en eru nú orðnir fimmtán og flestir fyrrverandi skipverjar á Óðni. Markmiðið er að varðveita skipið og merkilega sögu þess. „Saga skipsins byrjar í rauninni þegar ákveðið er að færa landhelgina úr fjórum mílum í tólf. Þá byrjar undirbúningurinn að byggingu þessa skips. Þetta var tímamótaskip á sínum tíma,“ segir Egill Þórðarson, loftskeytamaður hjá Landhelgisgæslunni. Skipið lék stórt hlutverk í þorskastríðunum þremur. Á hverjum mánudagsmorgni mætir hópur manna að Grandagarði 8 í Reykjavíkurhöfn. Þar liggur Varðskipið Óðinn við br
Vinna 5-6 þúsund tíma á ári í sjálfboðavinnu til að halda Óðni við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar