„Þetta er bara altjón, það er bara svoleiðis. Þetta átti nú að vera lífeyrissjóður okkar og barnanna en þetta fór bara því miður út um gluggann,“ segir Elís Árnason veitingamaður sem átti kaffihúsið Adesso og veitingastaðinn Sport og Grill í Smáralind. Hann rak Adesso í rúm 20 ár og Sport og Grill þar til árið 2024 þegar hann seldi þessa staði til fjárfestanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Jóhannesar Birgis Skúlasonar.Elís segist hafa bara hafa fengið lítinn hluta kaupverðsins greiddan og að hann hafi á endanum þurft að taka tugmilljón króna bankalán til að borga til baka lán sem hvíldu á fyrirtækjunum og hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir. Hann segir tjón sitt í viðskiptunum nema um 100 milljónum. „Þetta er eins svört saga og hægt er,“ segir hann.Báðir staðirnir, Adesso og Sport og