Demókratar tryggja sér öldungadeildarþingsæti Alaska

Demókratinn Mary Peltola hefur tryggt sér öldungadeildarþingsætið fyrir Alaska. Peltola nær sætinu af repúblikananum Dan Sullivan, þó rétt naumlega, en hún fékk 50,12% atkvæða eða 144.302 atkvæði. Sullivan fékk 131.844 atkvæði og þriðji frambjóðandinn sem er næstum alnafni þess fyrrnefnda, Daniel J. Sullivan Jr., fékk 4.760 atkvæði.Þar með liggur fyrir endanlegur sætafjöldi demókrata í öldungadeildinni, sem hafa tryggt sér 56 sæti á móti 44 sætum repúblikana.Peltola var fyrst kjörin á þing sem þingmaður Alaska í fulltrúadeild árið 2022. Hún er fyrsti þingmaðurinn af ættum frumbyggja sem tekur sæti í öldungadeildinni og fyrsti demókratinn frá Alaska sem nær kjöri í öldungadeild síðan 2008.
Demókratar tryggja sér öldungadeildarþingsæti Alaska

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar