Myglu er að finna í um 90% herbergja ókláraðs hótelturns Radisson Red að Skúlagötu 26. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins. Talið er að tjónið geti numið allt að 14 milljörðum króna. Þá er Arion banki sagður hafa hætt fjárveitingum þegar kom í ljós hve víðtækar skemmdirnar voru.Til stóð að opna Radisson Red risahótelið í febrúar á næsta ári.Greint var frá því í dag að sex félög tengd hótelturninum við Skúlagötu hefðu verið tekin til gjaldþrotaskipta eftir að framkvæmdir voru stöðvaðar í byrjun nóvember. Eva Bryndís Helgasdóttir lögmaður hefur verið skipuð skiptastjóri yfir öllum félögunum. Til stæði að finna aðila sem væri tilbúinn í að taka við og ljúka verkinu.Viðskiptablaðið segir skemmdirnar á húsnæðinu mun meiri en fyrst var talið. Þá þurfi að öllum líkindum að fjarlægja herbergis