Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi

Bandaríkin gerðu loftárás á Qeshm-eyju í Hormússundi í dag, stuttu eftir að íranski byltingarvörðurinn sagðist hafa gert árás á ratsjárstöð í Barein. Bandaríkin hafa afnot af henni.AFP-fréttaveitan hefur eftir bandarískum embættismanni að herflugvélar hafi notað stýriflaugar til að gera árás á skotpall fyrir flugskeyti á vegum byltingarvarðarins á Qeshm-eyju.Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA sagði Bandaríkjamenn hafa hæft eyjuna en ekki valdið miklum skemmdum.Fyrr í dag heyrðust sprengingar í Barein en herinn þar í landi sagði loftvarnarkerfi hafa komið í veg fyrir að flugskeytin hæfðu skotmörk. Byltingarvörðurinn sagðist hafa beint sjónum sínum að ratsjárkerfi sem Bandaríkjamenn reka í Barein.Þetta er ekki í fyrsta skipti í þessum mánuði sem Bandaríkin gera árás á Qeshm-eyju. 3. nóvember ge
Bandaríkjaher gerir árás á Qeshm-eyju í Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar