„Að tala um að nemendur skorti málfræðikunnáttu þegar þeir koma í MR og minnka um leið latínunám er mótsagnakennt,“ segir Ingibjörg Hrafnsdóttir, áheyrnarfulltrúi nemenda á skólanefndarfundi, og gagnrýnir harðlega að rektor skólans hafi einhliða tekið ákvarðanir um breytingar á skólanámskrá MR í vetur sem leið.