Ísland er ekki á sama stað og Danmörk og nokkur önnur Evrópuríki, sem ætla að senda fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd til Rúanda í Afríku. Ísland telur ekki ástæðu til þess að fara þessa leið. EKKI RÆTT MEÐAL RÁÐHERRA EÐA Í RÍKISSTJÓRN Greint var frá því í fréttum í gær að Danmörk og fjögur önnur Evrópuríki ætluðuað senda fólk, sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd, til Rúanda í Afríku strax á næsta ári.Þetta tilkynntu forsætisráðherra Danmerkur og kanslari Austurríkis á fundi með fréttamönnum síðdegis í gær.„Ja, þetta er ákvörðun sem þessi fimm ríki eru með í pípunum með einum eða öðrum hætti, Ísland að minnsta kosti telur ekki ástæðu til þess að fara þessa leið. Þetta hefur ekki verið rætt meðal ráðherra eða í ríkisstjórn þannig að við erum ekki á þessum stað.“En