Úrvinnslugjald á heyrúlluplasti gæti verið að hækka um 92,3% samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í dag er úrvinnslugjaldið, það gjald sem er ætlað að standa undir söfnun og úrvinnslu plastsins þegar það hefur lokið hlutverki sínu, 65 krónur á kílóið. Verði af hækkuninni verður það 125 krónur.„Ég held að bændur séu hlynntir því að úrvinnslugjaldið geti staðið undir úrvinnslunni, en við þurfum þá að fá einhverjar sannanir fyrir því að gjaldið renni til þess raunverulega,“ segir Þórólfur Ómar Óskarsson, bóndi í Grænuhlíð í Eyjafirði.Árið 2021 var úrvinnslugjald per kíló 28 krónur. Hækkunin hefur því verið brött undanfarin fimm ár og kemur niður á bændum.„Þetta eru auðvitað bara aukin útgjöld sem skila sér í lægri framlegð af vörunni sem ég er að framleiða sem er mjólk og kjöt fyrir