Jensen Huang, sem lét af störfum sem forstjóri bandaríska tæknirisans Nvidia í síðustu viku, segist reiðbúinn að snúa aftur til starfa hjá fyrirtækinu.Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi breska ríkisútvarpsinu, BBC.Hlutabréfaverð Nvidia tók mikla dýfu þegar upp komst um framhjáhald Huangs með konu sem er sögð vera kínverskur njósnari. Hann er einnig sagður hafa haldið við samstarfskonu sína hjá Nvidia en þau eru bæði gift. Huang lét af störfum í síðustu viku.Þetta er í fyrsta skipti sem Huang tjáir sig opinberlega eftir að hafa látið af störfum en hann hafði verið forstjóri frá stofnun fyrirtækisins fyrir 33 árum.„Ég hef gert alvarleg mistök í mínu einkalífi. Ég bjó til vandamál fyrir stjórn fyrirtækisins sem ég iðrast innilega. Ég tek fulla ábyrgð á mistökum mínum,“ segir Huang