Erlendur karlmaður sem ferðaðist með 15 ára gamalli stúlku var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli í byrjun nóvember 2024. Hann gat ekki gefið fullnægjandi skýringar á ferðalagi sínu og stúlkunnar og var því handtekinn.Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar þar sem farbanni yfir föður stúlkunnar var hafnað. Úrskurðurinn er frá því í janúar 2025 en birtist á vefsvæði dómstólanna í dag.Lögregla grunaði föðurinn um mansal með því að hafa gefið dóttur sína í nauðungarhjónaband þar sem hún hefði verið misnotuð kynferðislega. FJÖGUR HANDTEKIN TIL VIÐBÓTAR Stúlkan var falin barnavernd eftir að hún og maðurinn voru stöðvuð. Þegar henni var fylgt úr flugstöðinni komu tveir menn aðvífandi – faðir mannsins sem hafði verið handtekinn og frændi hans.Sá fyrrnefndi vildi fá að vita hvað væri að gerast og