Sonur Kristínar Kolbrúnar Kolbeinsdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, missti allan stuðning sem hann hafði fengið allan daginn í leikskóla þegar hann byrjaði í fyrsta bekk í grunnskóla. Að hennar sögn var syni hennar ætlað að aðlagast almennum bekk þar sem hann náði ekki að læra. Kristín sagði á fundi borgarstjórnar í dag að reynsla sonar hennar sýni hvers vegna skóli án aðgreiningar gangi ekki upp fyrir öll börn.