Þátttaka helstu lífeyrissjóða landsins var afar dræm í nýafstöðnu fjórtán milljarða hlutafjárútboði Bláa lónsins, meðal annars hjá sumum stórum sjóðum sem áttu hlutfallslega lítið í félaginu, og réð það miklu um að ekki tókst að fylla tilboðsbók ætlaða stærri fjárfestum í samræmi við markmið. Lífeyrissjóðirnir voru á meðal hluthafa Bláa lónsins sem samþykktu í lok október að efna til hlutafjárútboðs á genginu 95 krónur á hlut.