Þýski fjármálarisinn Deutsche Bank setti eigin hagsmuni ofar því að fylgja alþjóðlegum refsiaðgerðum og lögum og reglum um varnir gegn peningaþvætti. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem rúmlega 200 blaðamenn unnu að. BROTTHVARFI BANKANS FRÁ RÚSSLANDI ÓLOKIÐ Rannsóknin var kölluð Inside Deutsche Bank, bak við tjöldin hjá Deutsche Bank. Blaðamenn frá Der Spiegel, Financial Times, The New York Times, Le Monde og þýska almannaþjónustumiðlinum ZDF tóku meðal annars þátt í henni.Hún byggir á 15 milljónum skjala, sem ná allt að 20 ár aftur í tímann, sem var lekið af uppljóstrurum innan bankans.Rannsóknin varpar ljósi á tengsl bankans við rússneska ólígarka, kynferðisbrotamanninn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein og Donald Trump áður en hann varð forseti Bandaríkjanna.Samkvæmt skjölunum lagði