Staðan í birgðageymum hitaveitunnar á Akureyri er fyrir neðan öryggismörk og hefur verið frá því í gærkvöldi. Notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslu vegna kuldakasts síðustu daga. Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu.„Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna og heldur sú vinna áfram eins lengi og þarf. Staðan er viðkvæm og lítið má út af bregða,“ segir í tilkynningu á vef Norðurorku.Unnið er að því að koma olíukatli við Mímisbraut í gagnið. Hann er nýttur í neyð. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Til að lágmarka olíunotkun verður reynt að hafa hann í gangi sem skemmst. FÓLK BEÐIÐ AÐ PASSA UPP Á HEITAVATNSNOTKUN Stórnotendur eru beðnir um að draga úr notkun á heitu vatni eins og kostur er. Skrúfað hefur verið fyrir upphitun íþr