Starfshópur um framfærslu aldraðs flóttafólks frá Úkraínu sem dvalið hefur á Íslandi í tvö ár eða lengur hefur hafið störf.Í hópnum eiga sæti fulltrúar úr félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, innviðaráðuneytinu, Borgarbyggð og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.Á Bifröst í Borgarfirði hefur nokkur fjöldi úkraínskra flóttamanna komið sér fyrir. Framfærsla þess hluta hópsins sem er á eftirlaunaaldri hefur íþyngjandi áhrif á rekstur sveitarfélagsins.Starfshópurinn skilar tillögum til ráðherra ekki síðar en 8. janúar um það hvernig einstaklingar í slíkri stöðu geti haft trygga framfærslu til framtíðar.Eftir að Háskólinn á Bifröst flutti starfsemi sína úr þorpinu var mikið af íbúðarhúsnæði á lausu í þorpinu. Þegar stríð hófst í Úkraínu fékk flóttafólk þaðan húsnæði þar.Gréta S