Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út vegna vélsleðamanns

Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur til að aðstoða slasaðan vélsleðamann á Langjökli nærri Hvítárvatni. Vísir.is greindi fyrst frá.Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrluna hafa tekið á loft klukkan 16:00 og að hún hafi lent á Langjökli um hálftíma síðar.Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitir séu á leiðinni og að þær séu á jökuljaðrinum sem stendur.Ekki er vitað hvernig slysið varð eða hver líðan mannsins er að svo stöddu.
Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út vegna vélsleðamanns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar