Hæstiréttur hefur snúið við dómi Landsréttar sem taldi alla dómara Héraðsdóms Reykjavíkur vanhæfa til að dæma í máli ljósmóður gegn íslenska ríkinu. Ljósmóðirin telur að lífeyrisréttindi hennar hafi verið skert.Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur úrskurðaði að allir dómarar dómstólsins skyldu víkja sæti í málinu vegna vanhæfis því þeir væru allir félagar í sama lífeyrissjóði og ljósmóðirin, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, og hefðu því fjárhagslegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins.Landsréttur staðfesti úrskurðinn en ríkið skaut því til Hæstaréttar.Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi í gær, því hann telur ekki að allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur séu vanhæfir. Þar starfi dómarar sem skipaðir voru eftir að breytingar á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sem deilt er um