Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri

Fyrstu íbúarnir á nýjum nemendagörðum í Borgarnesi fluttu inn í haust. Þeir eru í Húsi kynslóðanna - sem heitir svo því á efri hæðum hússins eru íbúðir fyrir 55 ára og eldri.Heiðdís María Fannarsdóttir, er frá Akranesi. Hún hóf nám við Menntaskóla Borgarfjarðar í haust. „Það skiptir mjög miklu máli. Ég þekki krakka sem taka strætó og vilja bara strax koma á heimavistina,“ segir hún.Viktor Bjarni Árnason ólst upp í Dölunum. Hann segir kost á heimavist muna miklu fyrir börn í dreifbýli: „Bæði kostnaðarlega og upp á tíma að gera, að þurfa ekki að eyða miklum tíma í að sitja í bíl.“Bragi Þór Svavarsson, skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar fagnar því að nemendur skólans komi víða að. „Þetta eflir ennþá frekar gott félagslíf í Menntaskóla Borgarfjarðar og auðgar samfélagið í Borgarnesi.“
Hús kynslóðanna á að hýsa menntaskólanemendur og íbúa yfir 55 ára aldri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar