Hrókeringar í nefndum eftir brotthvarf Ingvars

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar tekur sæti Ingvars Þóroddssonar sem aðalmaður í velferðarnefnd og varamaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ingvar gekk sem kunnugt er í raðir Sjálfstæðisflokksins í gær.Um leið víxlast nefndarsæti á milli Viðreisnar og Samfylkingar. Sigmar hverfur úr utanríkismálanefnd og tekur Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sæti hans. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Samfylkingu, tekur sæti Guðmundar Ara sem varamaður í utanríkismálanefnd og þá tekur Eydís Ásbjörnsdóttir, Samfylkingu, sæti Söndru Sigurðardóttur, Viðreisn, sem varamaður í sömu nefnd.RÚV / Ragnar Visage
Hrókeringar í nefndum eftir brotthvarf Ingvars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar