Blaðamennska stendur sannarlega á tímamótum þar sem almenningur hefur aldrei haft eins mikinn aðgang að upplýsingum. Þetta segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands en félagið stóð fyrir málþingi um stöðu fjölmiðla í breyttu umhverfi í dag.Samhliða var gefin út könnun sem gerð var meðal félagsmanna BÍ þar sem meðal annars kom fram að upplýsingaóreiða væri talin stórt vandamál sem dragi úr tiltrú á hefðbundna fjölmiðla.Á málþinginu fór Nic Newman frá Reuters Institute við Oxford-háskóla meðal annars yfir sviðið og minntist á hvernig neysla frétta er að færast frá hefðbundnum miðlum yfir á samfélagsmiðla.Magnið af upplýsingum segir Sigríður að sé slíkt að það leggi til upplýsingaóreiðunnar.„Kannski veit fólk ekki alveg hvernig það getur treyst þeim upplýsingum sem þa