Forseti Alþingis gerði sér ekki grein fyrir því að upplýsingar um flokkaskipti Ingvars Þóroddsson væru trúnaðarmál þegar hann ræddi þau við hana. Þetta segir Ingvar í samtali við Vísi að loknum fundi sínum með Þórunni Sveinbjarnardóttur. Hann segir þau hafa gengið sátt frá fundinum og málinu sé lokið af hans hálfu.