Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar breytingar á framfærslukröfum vegna dvalarleyfa á Íslandi. Hann segir breytingarnar óréttlátar og hafa mögulega alvarleg áhrif á einstæða foreldra og börn þeirra. Krummi fjallar um málið í Facebook-færslu sem hann birti í gær. Þar segir hann að gagnrýnin sé ekki aðeins byggð á almennum skoðunum hans á innflytjendamálum, heldur einnig á persónulegum aðstæðum. Kærasta...