Stjórnarflokkunum hefur haldist illa á þingmönnum og eru búnir að missa þrjá frá sér áður en kjörtímabilið er hálfnað. Það er þó ekkert nýdæmi að þingmenn skipti um vistarverur. Metið á sennilega Kristinn H. Gunnarsson sem skipti þrisvar um flokk á þeim tólf árum sem hann sat á þingi.Þegar Ingvar Þóroddsson sagði sig úr Viðreisn í gær var það í 25. skipti á þessari öld sem þingmaður gekk úr einum flokki í annan. Þar að auki hafa fjórir þingmenn sagt skilið við sinn flokk án þess að ganga í annan flokk – í það minnsta fyrst um sinn.Karlar eru mun líklegri en konur til að skipta um flokk. Af þeim 29 skiptum sem þingmenn hafa sagt sig úr þingflokki á þessari öld hefur það aðeins gerst fjórum sinnum að kona hafi átt hlut að máli.Lista með nöfnum þeirra þingmanna sem skipt hafa um flokk er að f