Ingvar Þóroddsson, sem í gær gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn úr Viðreisn, sakar forseta Alþingis um trúnaðarbrest. Fréttir af vistaskiptum hans hafi farið að kvissast út eftir að hann tilkynnti forseta um ákvörðun sína.Ingvar kvaddi sér hljóðs í upphafi þingfundar í dag til að ræða málið. Sagði Ingvar að eftir fund hans með þingforseta í gærmorgun hafi fréttirnar af vistaskiptum hans farið að kvissast út. Því hafi hann ekki fengið tækifæri til að greina fólki frá vistaskiptunum í eigin persónu. „Sem gerði það að verkum að ég hafði ekki tök á að tala við fólk sem ég vildi að myndi frétta af þessu frá mér en ekki annars staðar frá. Mér þykir mjög miður yfir hvernig þetta atvikaðist.“Nýir samherjar Ingvars í Sjálfstæðisflokknum tóku til máls í kjölfarið. Þeirra á meðal þingflokksformaðu