Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, varar við því að þróun gervigreindar geti ógnað höfundarrétti, aukið samþjöppun valda og haft víðtæk áhrif á íslenskt samfélag. Hún kallar eftir auknu samtali stjórnvalda við listamenn og aðrar starfsstéttir um framtíð tækninnar. Þetta kemur fram í grein Katrínar sem birtist á Vísi. „Yfir stendur nú ógnarmikið og ef til vill ekki mjög yfirvegað...