Bláa lónið greiddi tveimur greiningarfyrirtækjum fyrir verðmöt sem voru um 40 prósentum yfir útboðsgengi félagsins. Þrátt fyrir það telja greinendur þátttöku fagfjárfesta í hlutafjárútboðinu undir væntingum. Stofnandi annars greiningarfyrirtækisins telur að fjárfestar sjái betri tækifæri í öðrum félögum. Mögulega hefði mátt veita meiri afslátt í útboðinu.