„Það var ömurlega óhuggulegt að horfa á þetta, þarna er varnarlaus villtur fugl bara skotinn með háum hvelli,“ segir Ingiveig Gunnarsdóttir formaður Dýravaktarinnar í samtali við mbl.is um atvik við tjörn á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í fyrradag þegar meindýraeyðir skaut álft sem hafðist þar við.