Færri háskólanemar taka námslán

Háskólanemum sem taka námslán hefur fækkað á síðustu árum. Skólaárið 2024–2025 tóku 12,5% íslenskra háskólanema námslán. Það er mikil fækkun frá skólaárinu 2008–2009. Þá tóku 57% háskólanema námslán.„Það hefur lækkað verulega hlutfall þeirra sem taka námslán. Skýringin á því er að námslán bera markaðstengda vexti núna. Vaxtabyrðin er þung, sveigjanleiki í kerfinu er alltof lítill og framfærslan hefur ekki haldið í við verðlag,“ segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur hjá BHM.Íslenskir háskólanemar velja frekar að vinna meðfram námi en að taka lán. Meiri vinna samhliða námi getur leitt til hægari námsframvindu eða frestunar náms, að sögn Ingvars. KERFINU VAR BREYTT 2020 Námslánakerfinu var breytt árið 2020. Ingvar segir kerfið í núverandi mynd ekki þjóna námsmönnum og kallar eftir br
Færri háskólanemar taka námslán

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar