Áfram mælast hreyfingar á Svínafellsheiði ofan Svínafellsjökuls samkvæmt Veðurstofu Íslands. Hreyfingarnar síðustu vikur hafa verið fremur jafnar og lítil hætta er talin í byggð.Í síðustu viku fór starfsfólk Veðurstofu í vettvangsferð. Þau fóru yfir mælibúnaðinn sem hefur vaktað hreyfingar í hlíðinni síðan 2018, mynduðu svæðið með dróna og mældu fastpunkta.Þær hreyfingar sem mælst hafa í haust eru fyrstu marktæku hreyfingarnar frá því vöktunarkerfið var sett upp.Veðurstofan spáir ekki fyrir um hvernig hreyfingarnar þróast á næstunni. Þær gætu fjarað út eða haldið áfram og leitt til skriðufalla.Veðurstofan telur litla hættu í byggð að svo stöddu.Ástæðan fyrir að Svínafellsheiði er vöktuð er sú að það eru sprungur í norðanverðri heiðinni fyrir ofan jökulinn.Í hættumati Veðurstofunnar frá 202