Lokun Hamborgarafabrikkunnar: Skiptastjóri vill fjárfesti í atvinnurekstrarbann

Skiptastjóri í þrotabúi veitingafyrirtækis sem Helgi Magnús Hermannsson átti hefur höfðað mál gegn honum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá samþykkt atvinnurekstrarbann gegn honum. Um er að ræða skiptastjóra þrotabús Veislunnar ehf. sem er veitingafyrirtæki sem Helgi Magnús átti og skildi eftir sig 215 milljóna króna skuldir. Þetta staðfestir skiptastjórinn Ólafur Björnsson, lögmaður á Selfossi, í samtali við fréttastofu. Ólafur gekk frá þrotabúi Veislunnar nú í haust og fundust engar eignir í búinu upp í þessar skuldir.Helgi Magnús hefur ítrekað verið til umfjöllunar í fjölmiðlum eins og Vísi.is síðustu mánuðina vegna fyrirtækja sem hann hefur átt sem farið hafa í þrot eða verið lokað af yfirvöldum. Í síðustu viku var sagt frá því að Skatturinn og lögreglan hefðu innsiglað Hamborgaraf
Lokun Hamborgarafabrikkunnar: Skiptastjóri vill fjárfesti í atvinnurekstrarbann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar