Borgarstjóri sendi stjórn Orkuveitunnar bréf í byrjun nóvember þar sem hún hvatti til hagræðingar í fyrirtækinu. Markmið hvatningar borgarstjóra var að skapa svigrúm fyrir umfangsmiklar innviðafjárfestingar og draga úr þörf fyrir lántökur. Borgarstjóri hefur jafnframt boðað sölu Carbfix þar sem átta störf voru lögð niður í dag og fjögur færast til Orkuveitunnar.