Veittar eru sérstakar undanþágur fyrir heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk leik- og grunnskóla í nýjum reglum ráðherra um framlög ríkisins til háskóla.Breytingarnar voru birtar á vef stjórnarráðsins í gær og snúa að reglum um fjárveitingar til háskóla. Frá og með háskólaárinu 2027 til 2028 verður ekki lengur greitt framlag til háskóla fyrir námsárangur (kláraðar einingar) eða útskrifaða nemendur sem eru frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Með þessu minnka fjárframlög ríkisins til háskóla vegna nemenda sem ekki eru íslenskir eða innan EES. Breytingarnar hafa ekki áhrif á nemendur sem klára nám sitt áður en hún tekur gildi. ÓTTAST AÐ FÆRRI HJÚKRUNARFRÆÐINGAR KOMI TIL LANDSINS Eins og áður segir eru heilbrigðisstarfsfólki og starfsfólki leik- og grunnskóla veittar undanþágur