Vara við umferðartöfum vegna framkvæmda

Lokað verður fyrir umferð um rampinn frá Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut til norðurs milli 11 og 13 í dag.Vegagerðin segir að búast megi við umferðartöfum og biður vegfarendur að sýna aðgát og tillitssemi.Til stóð að loka rampinum í síðustu viku en framkvæmdum var frestað vegna veðurs.Daginn áður var rampinum af Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg til suðurs lokað vegna framkvæmda. Það olli miklum umferðartöfum.Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar sagði viðbúið að umferðartafir vegna rampsins sem nú á að loka yrðu minni þar sem hann væri minnst notaður.Rampurinn sem lokað verður í dag er í niðri í hægra horni myndarinnar.RÚV / Ragnar Visage
Vara við umferðartöfum vegna framkvæmda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar