Alvarleg sölutregða á nýbyggingum, vaxandi offramboð íbúða og sífellt þyngri skuldastaða byggingaverktaka gera það að verkum að „brotlending“ er fyrirséð í ákveðnum íbúðaverkefnum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum þess. Í nýrri greiningu frá Acro er sagt líklegt að bankarnir muni þurfa að taka yfir jafnvel hundruð nýbyggðra íbúða og ekki ætti að koma á óvart að yfirvofandi leiðrétting á fasteignamarkaði brjótist fram í lækkandi raunverði út þennan áratug.