Framkvæmdastjórn ESB boðar endurskoðun á verndaraðgerðum vegna kísilmálms

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að endurskoða verndaraðgerðirnar sem settar voru í nóvember í fyrra vegna kísilmálms, og hittu fyrir Noreg og Ísland, þrátt fyrir að ríkin tvö séu hluti af innri markaðnum.Þetta kemur fram í svari talsmanns framkvæmdastjórnarinnar við fyrirspurn fréttastofu RÚV. Rannsóknin hófst 13. nóvember og gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í lok maí á næsta ári.„Endurskoðunin felur í sér að meta hvort verndaraðgerðirnar hafi verið árangursríkar og hvort þörf sé á breytingum,“ segir í svari talsmanns framkvæmdastjórnarinnar.Þar kemur einnig fram að hagsmunaaðilar, þar á meðal opinberir aðilar í ríkjum utan Evrópusambandsins geti komið athugasemdum sínum á framfæri. „Í framhaldinu mun framkvæmdastjórnin leggja tillögur sínar fyrir aðildarríkin.
Framkvæmdastjórn ESB boðar endurskoðun á verndaraðgerðum vegna kísilmálms

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar