Þrír indverskir ríkisborgarar hafa verið ákærðir fyrir að framvísa fölsuðum breskum vegabréfum á Keflavíkurflugvelli. Mál þeirra verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í desember. Samkvæmt ákærunum gerðist þetta 19. mars 2025 í brottfararsal flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þau voru á leið til Dublin á Írlandi og sýndu starfsmönnum Icelandair vegabréfin en um er að ræða tvo karlmenn og eina konu. Öll...