„Ég byrjaði á þessu í sumar, í raun bara sem áhugamál,“ segir Niklái Nysted, höfundur Snørið. „Bróðir minn stakk upp á að það gæti verið töff að gera veiðileik og það vatt upp á sig.“Um miðjan október gaf hann leikinn út og vildi meta áhuga fólks. Nú þegar hafa nokkur hundruð manns keypt leikinn og um þúsund manns í 23 löndum spila ókeypis útgáfuna.Áhuginn var slíkur að Niklái hefur hönnun leiksins núna að aðalstarfa. Hægt er að kaupa svokallaða stofnandaútgáfu fram að áramótum. Þeir sem gera það geta verið í beinu sambandi við leikjahönnuðinn og haft áhrif á hvernig leikurinn þróast. Niklái segir að þetta verði í boði fram að jólum eða þar til spilarar verða of margir til að slíkt sé mögulegt. ENDURSPEGLAR ÍSLENSKAN OG FÆREYSKAN VERULEIKA Snørið gengur út á að veiða fisk, selja aflann