Einbýlishúsið við Erluás 21 í Hafnarfirði er til sölu á 205 milljónir króna. Húsið er 285,5 fermetrar, þar af er innbyggður bílskúr 58 fermetrar. Húsið var byggt árið 2002. Sigríður Ólafsdóttir, arkitekt hjá Grímu arkitektum, hannaði það. Húsið er U-laga. Í miðju þess er um 50 fermetra garður í skjóli sem snýr í suður. Garðurinn hleypir dagsbirtu inn í húsið....