Umsækjendur þurfa bráðum að þéna nærri tvöfalt meira á mánuði til að fá dvalarleyfi eða íslenskan ríkisborgararétt verði áform dómsmálaráðherra að veruleika.Fjöldi umsagna um reglugerðina í samráðsgátt stjórnvalda tvöfaldaðist á hálfum sólarhring áður en frestur rann út á miðnætti og varð 1.823. Það er, eftir því sem fréttastofa kemst næst, næstmesti fjöldi umsagna sem borist hefur í samráðsgátt stjórnvalda á eftir hagræðingartillögum almennings.Verði reglugerðin samþykkt verður framfærslukrafa einstaklings rúmlega 500 þúsund krónur á mánuði. Það er 93% hærra en nú og nokkuð hærra en lægstu laun sem kveðið er á um í íslenskum kjarasamningum. Í fyrra voru tæp 2% launafólks í fullu starfi með laun undir 500 þúsund krónum samkvæmt Hagstofunni.Íslendingar eru ríflega helmingur þeirra sem skilu