Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, gefur lítið fyrir yfirlýsingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að hún hefði átt samtöl við fleiri stjórnarþingmenn um að ganga til liðs við sinn flokk.Guðrún fagnaði í gær skiptum Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Hún sagðist þá bjóða fleiri velkomna í Sjálfstæðisflokkinn og að samtöl hefðu átt sér stað. Hún vildi þó hvorki tilgreina einstaka þingmenn né úr hvaða flokkum þeir væru. SLÍKUM SAMTÖLUM VÆRI HALDIÐ LEYNDUM Pawel var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag. Hann lýsti lítilli trú á að nokkur samtöl um vistaskipti fleiri þingmanna ættu sér raunverulega stað.„Segjum að það væri raunverulega þannig að Guðrún Hafsteinsdóttir væri núna í viðræðum við tvo, þrjá þingmenn Viðreisnar um að