Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda

Dótturfélag dótturfélags Íslandsbanka hefur keypt 20 íbúðir í fjölbýlishúsi sem er verið að reisa við Valshlíð og Haukahlíð á Hlíðarenda í Reykjavík. Bankinn hefur fjármagnað framkvæmdirnar og gefið út tryggingabréf upp á 12 milljarða og veðskuldabréf upp á einn milljarð vegna þeirra. Morgunblaðið greinir frá fasteignakaupunum í dag. Þau eru gerð í nafni Fastengis sem er dótturfélag eignarhaldsfélagsins Miðengis sem er dótturfélag Íslandsbanka. Fastengi greiddi 80% af kaupverðinu með millifærslu og gaf út skuldaviðurkenningu fyrir þeim 20% sem eftir standa.Mjög hefur hægt á sölu íbúða síðustu misseri, sérstaklega sölu nýrra íbúða. Verktakafyrirtæki sitja því uppi með óseldar íbúðir og lán á háum vöxtum.Morgunblaðið vísar til greiningar Acro verðbréfa sem vara við brotlendingu á fasteignama
Bankinn keypti 20 íbúðir á Hlíðarenda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar