Dönsk fréttastöð hefur ákveðið að hætta að fjalla um elstu konu Danmerkur eftir að upp komst að hún var virkur meðlimur í danska Nasistaflokknum á stríðsárunum.TV Midtvest er héraðsfréttastöð fyrir Mið- og Vestur-Jótland og tilheyrir stórmiðlinum TV2. TV Midtvest hafði fjallað ítarlega um Kirsten Schwalbe, bæði í máli og myndum, vegna þess að um miðjan október fagnaði Schwalbe 112 ára afmæli sínu. Við það varð hún elsti Dani sem vitað er til að hafi verið uppi.Í tilefni af áfanganum gaf Gyldendal-bókaútgáfan jafnframt út bók um Schwalbe 8. október. Til stendur að gera breytingar á bókinni eftir að upplýsingarnar komu fram. SAGÐI MANN SINN HAFA SKRÁÐ SIG Fréttamiðillinn Kristeligt Dagblad sagði fyrst frá því í október að á stríðsárunum hefði Schwalbe verið meðlimur í Þjóðernissósíalíska